Ofurhugar með ADHD – fræðslu og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir fullorðna með greint eða ógreint ADHD

Um hópmeðferðina
ADHD dregur úr sjálfstrausti enda veldur vandinn usla á ýmsum sviðum lífsins. Á þessu átta vikna námskeiði er veitt fræðsla um einkenni ADHD á fullorðinsárum, kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að vinna á einkennum og styrkja sjálfsmyndina.
Fólk þarf ekki að hafa fengið formlega greiningu á ADHD til þess að sækja námskeiðið, aðeins telja slík einkenni vera til vandræða.
ADHD er þrálátur vandi en með sálfræðimeðferð má finna leiðir til að draga úr hömlun einkenna, bæta líðan og sjálfstraust.
Verð
96.000
Tímasetning
Mánudagurinn 3. febrúar 2026, kl. 15:00 – 17:00