Náðu tökunum á lágu sjálfsmati

Um hópmeðferðina
Gott sjálfstraust felst í því að vita hver maður er og hvað maður getur, sama hvað á gengur, og í því að vera sáttur við sjálfan sig.
Í meðferðinni verður fjallað um sjálfsmat, hvað það er og hvaða aðferðir hægt er að nota til að bæta það. Aðferðirnar sem kenndar verða byggjast á hugrænni atferlismeðferð.
Í meðferðinni læra þátttakendur að tileinka sér nýja sýn á hugsanir sínar, tilfinningar og hegðun. Markvisst verður unnið með hverjum og einum að því að gera breytingar til að bæta sjálfsmat og líðan. Sérstaklega verður farið í samskipti, hvernig best sé að taka gagnrýni, leysa ágreining og ná sínu fram.
Fyrirkomulag
Tímarnir fara fram í 10-12 manna hóp sem hittist vikulega í tvo tíma í senn í alls níu skipti, auk eftirfylgdartíma að hópmeðferðinni lokinni.
Áður en meðferðin hefst hitta sálfræðingar KMS sérhvern þátttakanda í einstaklingsviðtali þar sem lagt er mat á hvort hópmeðferðin muni henta viðkomandi eða hvort önnur úrræði henti betur.
Kristjana Þórarinsdóttir sálfræðingur og teymisstjóri áfallateymis Kms mun stýra hópnum
Verð
115.000 krónur -athugið að í sumum tilvikum taka sjúkrasjóðir stéttarfélaga þátt í að niðurgreiða kostnað
Tímasetning
Næsti hópur hefst þriðjudaginn 16. mars 2026 kl. 13.00-15.00