ADHD dregur úr sjálfstrausti enda veldur vandinn usla á ýmsum sviðum lífsins. Á þessu átta vikna námskeiði er veitt fræðsla um einkenni ADHD á fullorðinsárum, kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að vinna á einkennum og styrkja sjálfsmyndina.
Fólk þarf ekki að hafa fengið formlega greiningu á ADHD til þess að sækja námskeiðið, aðeins telja slík einkenni vera til vandræða.
ADHD er þrálátur vandi en með sálfræðimeðferð má finna leiðir til að draga úr hömlun einkenna, bæta líðan og sjálfstraust.
Stefnt er að því að halda þetta námskeið reglulega og verða tímasetningar auglýstar hér á heimasíðu Kms. Athugið að stéttarfélög kunna að koma að niðurgreiðslu námskeiðsins.
Skráning á námskeiðið fer fram hér https://kms.is/panta-tima/ Vinsamlegast tilgreindu undir skilaboð hvaða meðferð er óskað eftir.



